Kreppur skilgreindar
Hvað eru fjármálakreppur
Hvað eru fjármálakreppur? Fjármálakreppur koma með nokkuð jöfnu millibili upp í mannkynssögunni. Hverjir hagnast á kreppum og hverjir tapa?
Ein kenningin er sú að núverandi kreppa hafi verið búin til og sé í rauninni verk í framkvæmd (operation). Einn höfuðtilgangurinn er að grafa undan millistéttinni á vesturlöndum, auka miðstýringu á fjármálasviðinu og þar með hinu pólitíska. Hef séð menn tala um að stefnt sé að einum til þremur gjaldmiðlum fyrir heiminn og algerri miðstýringu á peningakerfinu.. Einhverjir hafa gerst svo grófir að tala um að örmerkjum verði komið undir húð allra. Síðan má hugsa sér tölvustýrt pappírslaust peningakerfi. Manni verður þá á að spyrja. Hvað verður þá um þjóðir sem ganga ekki í takt við vilja hins svokallaða alþjóðasamfélags (stóra bróðurs)? Jú þeim aðilum verða algerlega allar bjargir bannaðar. Þær verða að beigja sig í duftið fyrir hinu þverþjóðlega ólíðræðislega valdi.
mið 10 2010
Fólk áttar sig almennt ekki á því að lagasetningar í öllum löndum eru oftar en ekki mjög ranglátar gagnvart hinum venjulega manni eða konu. Lagasetningar frjálshyggjunnar sem voru neyddar upp á ríki flestra landa eru sérhannaðar til að færa æ meiri eignir frá miðstéttinni yfir til hinna allra auðugustu. Fyrst með allskonar fjármálabólum (Ponzy scheme) og síðan á endanum með þeim eignartilfærslum sem fylgja heimskreppu sem er rétt að byrja. Hvernig væri að opna augun og upgradea á sér toppstykkið?
Ef almenningur í Hollandi og UK fer í hart við Íslendinga er sá hinn sami almenningur að grafa sína eigin gröf gagnvart þeim sem allt vilja gleypa og vilja gera alla að þrælum sínum "The International Banking Cartel".
Comments