Hugrækt
Tibetan Yoga and Secret Doctrine
Hér er hugmyndin setja fram hugleiðingu um innihald bókarinnar.
Hugleiðing
Guð er kærleikur
Þótt ég talaði tungum manna og engla, en hefði ekki kærleika, væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla. Og þótt ég hefði spádómsgáfu og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking, og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú, að færa mætti fjöll úr stað, en hefði ekki kærleika, væri ég ekki neitt. Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum, og þótt ég framseldi líkama minn, til þess að verða brenndur, en hefði ekki kærleika, væri ég engu bættari.
Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp. Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin, hann reiðist ekki, er ekki langrækinn. Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en samgleðst sannleikanum. Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt. Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok, og tungur, þær munu þagna, og þekking, hún mun líða undir lok. Því að þekking vor er í molum og spádómur vor er í molum. En þegar hið fullkomna kemur, þá líður það undir lok, sem er í molum.
Þegar ég var barn, talaði ég eins og barn, hugsaði eins og barn og ályktaði eins og barn. En þegar ég var orðinn fulltíða maður, lagði ég niður barnaskapinn. Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu, en þá munum vér sjá augliti til auglitis. Nú er þekking mín í molum, en þá mun ég gjörþekkja, eins og ég er sjálfur gjörþekktur orðinn. En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur
Þú ert ekki hugsanir þínar.
Að vera eða ekki vera er spurningin .... að vera núna.
Frekari pælingar á fullyrðingunni um að menn megi ekki óska sér fullkominnar uppljómunar til að öðlast hana vegna þess að hún er hér og nú
Hann fer einnig út í Sköpun alheimsins endalok hans og endursköun til eilífðar ... Trumbusláttur Shiva
Jhana
Jhana heitir það og er tegund af hugleiðslu sem byggist í grunninn á einbeitingu. Fyrst leitast viðkomandi við að losa sig undan 5 hindrunum.
1. Löngunum ( s. s. losta og græðgi )
2. Illvilja ( s. s. hatri og drottnunargirni )
3. Leti, dugleysi og sljóleika
4. Óróa og áhyggjum
5. Efa
Síðan eru neðri Jhana stigin 4
Á Enskri tungu: applied thought, sustained thought, rapture, happiness and one-pointedness of mind ( unification of mind )
Í lélegri þýðingu: Einbeita hugsuninni að litlum hlut, viðhalda hugsun, upphafningu, hamingju og samtengdur hugur.
Unification of mind ( unification er skylt orðinu join sem er náskylt meiningu orðsins yoga ).
Viðkomandi krefst ástundunar.
Hef verið að prófa jhana hugleiðslu http://en.wikipedia.org/wiki/Jh%C4%81na og mjög góð grein hér http://www.accesstoinsight.org/lib/authors/gunaratana/wheel351.html Það eru aðalega til tvær gerðir af hugleiðslutækni. Annarvegar sem byggist á innsýn og hinsvegar sem byggist á einbeitingu (sem síðan leiðir til innsýnar). Spurningin hvor leiðin er farin. Jhana gengur út á að þjálfa og þróa með sér einbeitingu til að vera fær um að stýra huganum betur til að öðlast visku (ekki þekkingu) til að losna úr hlekkjum ignorance (http://en.wiktionary.org/wiki/ignorance betri þýðing er fáviska heldur en fáfræði).
Jhana gæti þýtt leiðsla, samruni - skilt orðinu yoga - sem er í ætt við enska orðið join (samlagast - tengjast).
Aðferðirnar eru að einbeita sér að hlut (kertaloga, hvaða litla hlut eða depli sem er) og halda einbeitingunni. Hugsanirnar koma þjótandi að úr öllum áttum eins og litlir apakettir sem þarf að stugga í burtu jafnt og þétt.
Það er gert með því að ryðja í burtu 5 hindrunum.
Löngunum skynfæranna,
illvilja,
deyfð og drunga,
óróleika og áhyggjum,
vafa (doubt).
Hægt að nota andstæðuna. Allan tímann einbeita menn sér að litlum bletti(hlut) einhverstaðar.
Applied thought - hugsunin beinist að
Sustained thought - hugsunin heldur sig við
Rapture - upphafning
Happiness - hamingja
One-pointedness - jafnvægi í einbeitingunni. Síðan eru til 4 - 5 æðstu stig en þá eru menn, jafnframt því að vera það sem þeir eru þar sem þeir eru, komnir út fyrir gufuhvolfið :-) og það er ekki víst að allir ráði við það eða kæri sig um þvíumlíkt.
Þetta er á tilraunastigi eins og sést. Þessi síða er unnin í drupal innihalds stjórnunar kerfinu.