2012

2012

Hef verið að velta mér upp úr heimspeki, trúmálum, stjórnmálum, veraldarmálunum og vísindunum frá því ég man eftir mér.

Var að ljúka við að lesa Gúlakið eftir Solzhenitsin http://en.wikipedia.org/wiki/Solzhenitsin eftir að hafa lesið Tibetan Yoga and Secret doctrines. Seven books of visdom. Blekking eða þekking eftir Niels Dungal las ég í fyrra. Núna er það Leiðin til lífshamingjunnar samtalsbók við Dalai Lama, jafnframt því að vera að stúdera Jhana yoga hugleiðslutækni. Stjórnmál snúast um það hvernig fólk hugsar og hvað það gerir í framhaldi af hugsunum. Það má segja að trúmál séu nokkurskonar deild í stjórnmálum um leið og þau eig sér jafnframt dýpri tilveru sem hraðsoðin viska (sem hefur átt það til að snúast í andhverf sína) handa hinum venjulega yfirleitt ólæsa vinnandi manni á fyrri tímum, trúmál eru einn stærsti hluti af heimsmynd þess sem trúir, um leið er það mjög mótandi fyrir trú leysingjan að trúa ekki á æðri vitsmuna mátt. Trúin hefur alltaf verið hluti af stjórnmálum. Manni hefur dottið það í hug á hinum síðari árum að mannskepnan sé að vitkast og þá á ég við raunverulega visku hvers einstaklings. Græðgi og ótti eru á undanhaldi og innri friður og raunveruleg viska á innleið inn í vitundarlíf einstaklinganna á forsendum hvers og eins.
 

Hmmmm .... það er nú það ... ræðan sem Hitler http://hitler.org hélt ekki ...

Algerlega stórmerkileg vísindi.  Six degrees of separation.   Grundvallar vísindi til að skylja mannlegt samfélag og lífríkið.   Varðar í raun all sem lifir.

Athugasemdir