
Locobase Itch Relief Coolmousse er kælandi froða sem er sérstaklega þróuð til að slá hratt á ertingu og kláða í húð.
Froðan inniheldur mild innihaldsefni eins og Aloe Barbadensis þykkni og glýserín sem róar húðina og veitir henni raka. Kláðastillandi froðan má fara á allan líkamann, líka andlit og hentar fyrir alla fjölskylduna, jafnvel börn frá 3 mánaða aldri. Froðuna má nota eins oft og þörf er á. Áferðin er létt, froðan frásogast hratt inn í húðina og klístrast ekki. Eftirfarandi kynning er unnin í samstarfi við Alvogen.

- Veitir strax kælandi og róandi áhrif á húðina
- Frásogast hratt, klístrast ekki
- Hentar allri fjölskyldunni, líka börnum
- Ilmefnalaust
- Vegan
- Virkni prófuð af húðsjúkdómalæknum
Locobase Itch Relief Coolmousse fæst í öllum helstu apótekum
Nánari upplýsingar er að finna á alvogen.is