Zinkspray Baby bossakrem í úðaformi

Zinkspray baby er bossakrem í úðaformi. Hreinlegt, fljótlegt og árangursríkt. Myndar þunna filmu sem verndar og nærir viðkvæma húð ásamt því að slá á sviða, kláða og ertingu. Auðvelt og þægilegt fyrir börn og foreldra. Eftirfarandi kynning er unnin í samstarfi við Alvogen.

  • Ekki þarf að snerta viðkvæm svæði.
  • Minni hætta á sýklamengun.
  • Ekkert kremsmit á fingrum.

Zinkspray baby inniheldur sinkoxíð og fleiri húðverndandi efni sem í sameiningu vernda, næra og sefa viðkvæma húð barnsins. Inniheldur ekki litarefni, ilmefni, parabena eða önnur rotvarnarefni.

 „Í starfi mínu sem dagforeldri með ung bleyjubörn þá er allt sem einfaldar bleyjuskiptingar til bóta. Zinkspray er ótrúlega fljótlegt og þægilegt og virkar mjög vel. Líka mun hreinlegra þar sem ekki þarf að smyrja kremi á húð barnsins og ýfa þar með upp sár og roða. Ég mæli eindregið með Zinkspray fyrir dagforeldra og foreldra sem vilja einfalda bleyjuskiptin fyrir sig og börnin.

Sveindís Ýr Sigríðar-Sveinsdóttir dagforeldri

Zinkspray baby bossakrem í úðaformi fæst í öllum helstu apótekum.

Þessi kynning var unnin í samstarfi við Alvogen.

Svipaðar færslur