Á haustin þegar leik- og grunnskólar hefjast á ný er mikilvægt að vera undirbúin ef höfuðlús geri vart við sig. Elimax® Pure Power er öflug lausn sem drepur bæði lús og nit ásamt því að vernda gegn smiti.
Halda áfram að lesaMataræði á meðgöngu
Mataræði á meðgöngu er eitt af því fyrsta sem kona leitar upplýsinga um á meðgöngu. Í fyrstu getur verið yfirþyrmandi að leita eftir upplýsingum um hvað má borða og hvað má ekki borða á meðgöngu en sem betur fer er meira úrval sem má borða en það sem er mælt gegn því að borða á meðgöngu.
Halda áfram að lesaSvefnvenjur á meðgöngu
Það er ólíklegt að þú finnir fyrir miklum breytingum á svefnvenjum á fyrstu vikum meðgöngu en þegar fer að líða á seinni hluta fyrsta þriðjungs meðgöngu fer líkaminn að taka við miklum breytingum sem getur meðal annars verið svefntruflanir.
Halda áfram að lesaLús hjá börnum – Upplýsingar og góð ráð
Lúsasmit eru algeng hjá börnum og sérstaklega þegar leik- og grunnskólar hefjast á ný á hverju hausti. Það er því mikilvægt að vera undirbúin ef höfuðlús gerir vart við sig. Lúsasmit eru algengust á meðal barna á aldrinum 3 til 13 ára og gott að leggja áherslu á að kemba oft og reglulega yfir skólaárið.
Halda áfram að lesaElimax lúsasjampó fyrir börn
Á haustin þegar leik- og grunnskólar hefjast á ný er mikilvægt að vera undirbúin ef höfuðlús geri vart við sig. Elimax® sjampó er fljótverkandi lúsasjampó sem drepur höfuðlús og nit, auk þess að vernda gegn endursmiti með því að halda nýrri höfuðlús frá hárinu. Virkar á aðeins 5 mínútum. Engin þörf á að hafa sjampóið lengur í hárinu en leiðbeiningar segja til um. Elimax® sjampóið er sílikon frítt sem gerir það að verkum að auðvelt er að skola það úr hárinu, einnig hreinsar það hárið og gerir það mjúkt og glasandi.
- Drepur höfuðlús og nit ásamt því að halda nýrri höfuðlús frá hári.
- 100% áhrifaríkt.
- Virkar á aðeins 5 mínútum.
- Fyrir fullorðna og börn frá 12 mánaða aldri
- Án Sílíkons: auðvelt að skola úr hári.
- Án skordýraeiturs.
- Auðvelt að dreifa í hárið.
- Má einnig nota sem fyrirbyggjandi meðferð.
- Lækningatæki – virkni sönnuð með klínískum prófunum.
Hvernig á að nota Elimax® sjampó?
SKREF 1:
Elimax® sjampó dreift í þurrt hárið. Breiðið handklæði yfir háls og herðar til að koma í veg fyrir að sjampó leki á húð og fatnað. Notið sjampóbrúsann til að bera Elimax® sjampóið beint í hársvörðinn og í allt hárið. Tryggið að sjampóið fari ekki í munn/lungu eða augu (t.d. með því að hylja munn og augu með þvottapoka). Nauðsynlegt er að þekja hárið og hársvörðinn alveg með sjampóinu. Nuddið sjampóinu vel í hárið frá hársverði út í hárenda og veitið svæðinu bak við eyrun og hárlínunni á hálsinum sérstaka athygli. Látið sjampóið bíða í hárinu í 5 mínútur til að virka og kembið hárið á meðan (sjá skref 2). Ekki hylja hárið.
Hvernig á að nota Elimax® sjampó?
SKREF 2:
Hárið kembt á meðan Elimax® sjampóið liggur í hárinu. Kembið hárið vandlega með meðfylgjandi lúsakambi en það eykur árangur meðferðarinnar.
- 1. Burstið hárið vandlega með hefðbundnum hárbursta til að leysa flækjur.
- 2. Skiptið hárinu í 4 svæði: frá enni að hnakka, og milli eyrna.
- 3. Næst skal kemba hvert svæði með meðfylgjandi lúsakamb, byrjað er eins nálægt hársverðinum og mögulegt er. Kembið alltaf frá hársverði að hárendum.
- 4. Þurrkið reglulega af kambinum t.d. með bómullarskífu til að farlægja höfuðlús og nit. Kembið hvert svæði þannig að tryggt sé að það sé laust við höfuðlús og nit.
SKREF 3:
Þvoið hárið eftir 5 mínútur en að hámarki 15 mínútur (að meðtöldum þeim tíma sem tekur að kemba) Fyrst skal bleyta hárið örlítið svo sjampóið taki að freyða. Því næst skal skola hárið vandlega með vatni. Auðveldara er að hreinsa sjampóið úr hárinu ef notað er volgt vatn. Passið að sjampóið lendi ekki í augum. Ekki er þörf á að þvo hárið aftur með hefðbundnu sjampói. Þurrkið hárið vandlega með handklæði. Ekki skal nota hárþurrku.
Ef sjampóið er notað að kvöldi, þarf að tryggja að hárið sé alveg þornað þegar farið er að sofa. Leitið daglega í hárinu að höfuðlús/nit næstu 7 daga. Endurtakið meðferðina ef lús finnst innan þessa tímabils. Í meirihluta tilfella er einmeðferð fullnægjandi.
Virk innihaldsefni í Elimax® sjampó:
ÓLIGÓDEKEN OLÍA:
- Lokar öndunargötum lúsa og nita sem kafna og deyja
- Leysir upp vaxkennt ysta lag skordýra sem missa við það raka, skorpna og deyja
LICE PROTECTING FACTOR, LPF (SESAM OLÍA, AKRÝLAT FJÖLLIÐA):
- Hlutleysir hleðslu hársins sem gerir það erfiðara fyrir lúsina að fara á milli kolla
- Hefur lykt sem er óaðlaðandi fyrir lýs (en ekki mannfólk)
- Hefur áhrif á yfirborð hársins og þ.a.l. verður meðhöndlað hár óaðlaðandi fyrir lúsina
Nánari upplýsingar um höfuðlús má finna á heilsuvera.is/markhopar/sjukdomar-fravik-einkenni/hofudlus
Elimax® vörurnar fást í öllum helstu apótekum
Nánari upplýsingar um Elimax® er að finna hér.
Elimax fyrirbyggjandi lúsasjampó fyrir börn
Á haustin þegar leik- og grunnskólar hefjast á ný er mikilvægt að vera undirbúin ef höfuðlús geri vart við sig. Elimax® Prevention Shampoo er fyrirbyggjandi lúsasjampó sem var sérstaklega þróað til að vernda gegn lúsasmiti. Tilvalið að nota til að koma í veg fyrir lúsasmit þegar skólarnir hefjast á ný. Sjampóið fælir höfuðlús frá hárinu auk þess að hreinsa hárið, veita því raka og næringu. Það er án sílikons og inniheldur eingöngu náttúruleg innihaldsefni. Kynningin er unnin í samstarfi við Alvogen.
- Virkni sönnuð með viðurkenndum rannsóknum.
- Verndar gegn lúsasmiti í 3 daga eftir notkun.
- Má nota frá 12 mánaða aldri.
Notkunarleiðbeiningar
- Notað eins og hefðbundið sjampó.
- Sett í blautt hár, nuddað vel í hárið og hársvörðinn.
- Sjampóið er látið bíða í hárinu í 2 mínútur áður en það er skolað úr.
- Nota má hárnæringu í kjölfarið ef þess er óskað.
- Mælt er með því að nota sjampóið þriðja hvern dag til að tryggja hámarksvernd.
Virk innihaldsefni
Lice Protecting Factor, LPF (sesam olía, akrýlat fjölliða):
- Hlutleysir hleðslu hársins sem gerir það erfiðara fyrir lúsina að fara á milli kolla.
- Hefur lykt sem er óaðlaðandi fyrir lýs (en ekki mannfólk).
- Hefur áhrif á yfirborð hársins og þarf af leiðandi verður meðhöndlað hár óaðlaðandi fyrir lúsin.
Nánari upplýsingar um höfuðlús má finna á heilsuvera.is/markhopar/sjukdomar-fravik-einkenni/hofudlus
Elimax® vörurnar fást í öllum helstu apótekum og meðal annars á lyfja.is
- Elimax fyrirbyggjandi lúsasjampó netverslun.lyfja.is/product/elimax-fyrirbyggjandi-lusasjampo
- Elimax lúsasjampó netverslun.lyfja.is/product/elimax-lusasjampo
Nánari upplýsingar um Elimax® er að finna hér.
Fólinsýra er mikilvæg fyrir barnshafandi konur
Fólat er B-vítamín, oft nefnt fólasín eða fólinsýra er nauðsynlegt fyrir fólk á öllum aldri en það er sérstaklega mikilvægt fyrir konur á barneignaraldri og barnshafandi konum. Konur sem huga að barneignum eiga að taka inn 400 míkrógrömm fólinsýru (fólattafla eða fólatsprey) á hverjum degi og sérstaklega mikilvægt að taka fólinsýru fyrstu 12 vikur meðgöngu.
Halda áfram að lesaZinkspray Baby bossakrem í úðaformi
Bossakrem í úðaformi. Hreinlegt, fljótlegt og árangursríkt. Myndar þunna filmu sem verndar og nærir viðkvæma húð ásamt því að slá á sviða, kláða og ertingu. Auðvelt og þægilegt fyrir börn og foreldra.
Halda áfram að lesaAð venja barn af brjósti
Æskilegt er að brjóstagjöf fái að vara eins lengi og hún gerir móður og barni gott. Stundum geta komið upp ófyrirsjáanleg vandamál í brjóstagjöfinni og þá þarf að venja fyrr af brjósti en áætlað var.
Halda áfram að lesaAnnar þriðjungur – upplýsingar
Margar óléttar konur upplifa mikla ógleði, þreytu og annað á fyrsta þriðjungi og því fagna flestar konur þeim áfanga þegar annar þriðjungur hefst og stendur hann yfir frá viku 13 til 28. Oft er talað um þetta tímabil sem bestu og ánægjulegustu mánuði meðgöngunnar.
Halda áfram að lesa